26.12.2011 22:51

Brandur köttur




Var að setja upp myndir í kvöld,  á ebay uppboðið.  Þar á meðal var þessi feiti köttur.
Jólaköttur kannski.... en ég var nú ekkert að reyna að útskýra þann undarlega kött fyrir  ebay viðskiptavinum mínum tilvonandi.
Býst við að sú saga myndi frekar gera þá afhuga því að vilja eiga þennan kisa, sem lítur alveg eins  út fyrir að vera nýbúinn að hesthúsa óþekkt íslenskt barn.
Eins og ég hef sagt frá áður þá er mikill áhugi fyrir allskyns kattamyndum hjá þeim sem safna þessum aceo miniature myndum og þessi er kisi er að vekja mikinn áhuga!
En myndirnar eru nýkomnar upp og reglan er að það er ekki byrjað að bjóða í þær fyrr en að uppboðið er að enda eftir u.þ.b. 7 daga.  En þá er oft spennandi að fylgjast með.

12.12.2011 00:38

Ekki útrásarvíkingar á ferðinni hér



Þessi gressilegi gammur siglir til  Bretlands í fyrramálið.
Víkingaskip eru að gera sig á ebay.
Um borð eru þrælar undir árum og víkingar með gulli drifna skildi.
Þetta er lítil aceo vatnslitamynd, stærðin er á við eitt Visakort.
Engir útrásarvíkingar hér á ferð.

08.12.2011 11:33

Fornt far



Það eru bráðum 2 ár síðan ég tók upp á því að setja þessar pínulitlu myndir á uppboðsvefinn ebay, og ég er eiginlega orðin svolítið háð þessari dellu.
Nú eru myndirnar farnar að stækka svolítið og ég er farin að ná tökum á því að mála svona smámyndir eins og t.d. aceo myndirnar mínar eru svo það er léttur leikur að setja upp svona 8-12 myndir af ýmsum stærðum ( Þó allt séu þetta smámyndir ) í viku hverri.
Það hefur verið mikil áhugi fyrir norðurljósamyndum og fossa og landslagsmyndum sem ég hef sett upp.
Núna er ég að velta fyrir mér hvort víkingaskip gætu hugsanlega slegið í gegn!
Það verður að hafa svolitla fjölbreytni í þessu,  annars nenni ég ekki.
Reyndar eru uglur og kettir svolítið óplægður akur ennþá hjá mér.
Þetta skip hérna á síðunni er af stærð 6 x 4 tommur.
Semsagt vel til þess fallið að setja það í karton og undir gler þar sem það er málað með vatnslitum.
    Flettingar í dag: 53
    Gestir í dag: 13
    Flettingar í gær: 242
    Gestir í gær: 48
    Samtals flettingar: 234174
    Samtals gestir: 32944
    Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:57:32