07.05.2012 08:11

Gullnar Blómamyndir



Það er orðið langt síðan hér hafa verið sagðar fréttir af því hvernig salan hjá mér gengur á uppboðsvefnum ebay.

Þessi mynd er í boði þar núna og uppboðið rennur út eftir 4 daga.

Þetta er svokölluð OSWOA mynd.  Sem þýðir:  Original Small Works Of Art.

Til að eiga rétt á að vera kallaðar oswoa myndir þurfa þær að uppfylla þau skilyrði að vera 4"x 6" eða 10 x15 sm. að stærð.  Auk þess þurfa þær að vera frummyndir eða orginal.  Það er nú samt allur gangur á því og mikið er um eftirprentanir.

Ég hef nú ekki mikið málað af svona myndum frekar verið að mála þessar smámyndir sem eru á stærð við Visa kort.

Þær eru skemmtilegar þegar maður nær tökum á því að mála svona myndir.

Nýjasta trendið hjá mér eru "gullskreyttar" myndir og þessi mynd er gullskreytt með gullbleki.

Eins mikið og ég þoli ekki gullskreytta ramma utanum myndirnar mínar, þá elska ég að skreyta þær með gulli eða silfri. 




Þetta er einnig OSWOA mynd og hún er ennþá meira gullskreytt en sú fyrri og í sterkari litum.

Hún er líka á ebay á uppboði núna.
 
Blómamyndir eru einmitt svo kjörnar fyrir gullskreytingu.

Að lokum vil ég geta þess að auðvitað er ég ekkert að græða á þessu, því fer víðsfjarri.

En þetta er orðin algjör della hjá mér og eiginlega má líkja þessu við prjónadellu.



 


19.03.2012 09:28

Hvað á myndin að heita?




Þetta er mynd sem ég er að hugsa um að láta reyna á inn á ebay.  Hún er máluð á striga sem strengdur er utanum pappaspjald og svamp!
Eiginlega er það nú ekki góð hugmynd.   Þetta með að ganga svona frá striganum þ.e.a.s.

Myndin er máluð með olíu og spaði  eða palettuhnífur notaður við það að mestu leyti.

Spurning með nafnið.  Hvað ég á að skíra þessa mynd.Kannski eitthvað tengt litunum eins og t.d.  .Fire mountain  eða:  Blue water  Red mountain.. Eða : Beyound were the mountains.    Nú eða þá eitthvað nautnalegt eins og:  Chateaubriand with mashed potatoes and fresh salad.

Þetta var bara smá djók um erfiðleikana í sambandi við nafngiftina sem hefur hvílt þungt á huga mér undanfarið!!  Vafalaust endar þetta með nafninu sem ég nota yfirleitt um svona landslagsmyndir og það er einfaldlega:  Landslag eða Landscape.  Þá getur áhorfandinn átt síðasta orðið og það er einmitt svo sérstakt og gaman að fá að heyra það. 

Það höfðar mikið til mín að mála svona gróft með spaða og beint úr túpunni Mystískar þokumyndir eru ekki það sem ég vil mála en þó finnst mér þær oft afar fallegar. 

Svo þegar ég mála með vatnslitum þá er það hin eilífa glíma vatnsins og litarins og hvernig litirnir renna saman (og sundur) blandast hver öðrum og áferðin á litunum þegar komnir eru á blaðið. 

Margar af þessum litlu aceo myndum sem ég hef selt eru einmitt skornar útúr stærri myndum sem eru málaðar með vatnslitum og svo " misheppnast" en einhver smápartur hefur orðið flottur uppfyllt öll skilyrðin sem ég setti í huga mér.

Þetta er nú orðin heilmikil langloka um eina mynd. 

Svo ég segi bara bless þar til næst.


  • 1
Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 109
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 245306
Samtals gestir: 35157
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:39:28