Gestabók
14.5.2010 kl. 12:47
Sæl og blessuð,jæja þa´er tölvan komin úr viðgerð,en hún var full af vírus,sem ég er viss um að kom af fésbókinni.En þú hefur varla verið hér heldur síðustu daga,svo ég verð að ræsa þig.Ég ætla að láta fésbókina vera enn um sinn,er að pæla hvort ég skrái mig alveg út.
Jæja en góða helgi,kveðja Ella.
Ella
12.4.2010 kl. 20:45
Vertu velkomin!
Vertu velkomin til okkar þegar við erum komin til Eyja,þá verðum við ekki svona langt í burtu.Kveðja Ella.
Ella
1.4.2010 kl. 15:33
Jæja ég kíki nú svo sjaldan í gestabókina sjálf að ég var að reka augun í þetta núna!
Ég óska ykkur alls góðs í þessum flutningum og gott að heyra að Sævar er kominn með vinnu vona að þér gangi vel í atvinnuleitinni líka Ella mín:-)
Maður á kannski eftir að skreppa til Eyja í sumar! Skyldi þó aldrei vera:-)
asben
26.3.2010 kl. 17:24
Vestmannaeyjar!
Sæl og blessuð,já það er satt við flytjum til Eyja eftir 3 mánuði og ég er svo fegin,en það verður ekkert úr því að flytja til Þýskalands,verður að hafa það.
En það er allt í gangi með íbúðarmál og Sævar er búinn að fá vinnu.Ég fer svo að leita að vinnu strax,en fleiri fréttir seinna...kveðja Ella.
Ella
28.2.2010 kl. 13:00
Kominn tími til að kvitta hér:-)
Já sæl!
Bara að kvitta aðeins í Gestabókina.Ég er svolítið rugluð í tímarásinni,út af endalausum snjó og frosti hér,er að sjóða hangikjöt,sem er annars ekki í matinn á mínu heimili lengur nema á Jólum og á Þorra.En nú er Góa byrjuð og vonandi sér fyrir endan á þessum vetri einhvertíman og maður sjái fyrir endan á Icesave líka.
Hafið það gott..kveðja Ella.
Ella
30.1.2010 kl. 12:35
Velkomin heim!
Vertu velkomin heim aftur,en ég skil þig að þú viljir vera á Kanarí áfram,svona leið mér á Mallorca í fyrra.Já ég var að vakna eftir næturvakt og ætla að horfa á Handboltan"spennandi"
Hlakka til að þú komir heim..kveðja Ella.
Ella
29.1.2010 kl. 8:44
Hæ Ella! Kannski kem ég bara ekkert heim, það er svo fínt að vera hérna sem ég er!!
Annars fer að líða að áætlaðri heimkomu, svo ég skrifi í alvöru!
Hér er eilíf sól og blíða,engir ísbirnir enginn kudahraglandi ég vildi bara að þú værir hérna líka með eiginmanni og öllu!
Það myndi ekki væsa um ykkur hér, sitjandi á góðum bar og horfa á handboltann í beinni á laugardaginn með okkur!!!
asben
20.1.2010 kl. 12:56
Heimkoma!
Hvenær kemur þú heim eiginlega,ég er farin að sakna þín;-(
Ég mála og mála myndir og hef bara gaman að..nægur tími eftir að ég byrjaði á næturvöktum...jæja en hafðu það gott áfram í hvítvínsmarineringunni..rosalega fínt orð,he,he,njóttu þess bara...svo heyrumst við..kveðja Ella.
Ella
12.1.2010 kl. 17:03
Hæ Ella!
á ég er eiginlega í volgri hvítvínsmarineringu...og langri!
Ótrúlega ´gott!!
asben
8.1.2010 kl. 11:54
Sumar og sól!
Sæl Áslaug,ertu í sólbaði?
Frábært hjá ykkur,en hvað eruð þið?
Hér er hitinn við frostmark;-b.
Hafið það gott,kveðja Ella.
Ella
5.1.2010 kl. 19:30
Slæmur dagur!
Góðan daginn,jæja þá vitum við það,svo segja allir að þetta sé tómur misskilningur,að við hefðum alltaf ætlað að borga þetta,hvað var þetta fólk að skrifa undir?
Ég vona að guð blessi ísland´í þetta skipti!
Ella litla.
Ella
1.1.2010 kl. 17:25
Gleðilegt ár!
Gleðilegt ár!
Ætla að vera fyrst til að dusta rykið af þessari gestabók.
Vona að árið verði gott og farsælt...Og að það verði kvittað oft í þessa gestabók á árinu...kveðja Ella.
Ella
24.12.2009 kl. 14:52
Gleðileg jól Ella og Hafdís og allir sem þetta lesa:-)
Ég er að leggja af stað í jólamatinn hjá þér Hafdís mín, eftir fáeinar mínútur!
Og jólasveinninn kemur með mér!!!
asben
24.12.2009 kl. 14:23
Jólakveðja!
Elsku Áslaug og fjölskylda,Gleðileg Jól....kveðja Ella.
Ella
24.12.2009 kl. 0:24
Ella, Ég óska þér og Sævari gleðilegra jóla og farsæls komandi árs!
Vonandi er mömmu sama þó ég noti gestabókina hennar í jólakveðju til þín :) Mamma, þú mátt fá eina jólakveðju líka en ég sé þig nú á morgun :) Núna er ég næstum því búin með allt og ætla að fara að sofa og svo klára ég á morgun það sem eftir er.
Hafdís Rósa
20.12.2009 kl. 9:36
Jólasnjór................og jólastormur!
Sælar...vitið þið hvað ég dunda mér við á meðan snjóstormur geysar úti?
Ég er að mála mynd af Tinnu litlu..hún er svo sæt og mikið krútt:-)
Ella
20.12.2009 kl. 3:21
Hafdís: Verði þér að góðu:-)
Ella: Takk fyrir sendinguna:-)
asben
20.12.2009 kl. 3:19
Ykkur Sævari á ég nú við!!
Hafdís Rósa er hér á suðvest. í nagrenni við mig.
asben
20.12.2009 kl. 3:17
Já það er líka að skella á með jólabylinn hjá ykkur.
Við virðumst ætla að missa af jólabylnum þessi jól, eins og svo oft áður!!
asben
19.12.2009 kl. 9:07
Já ég ætla líka að kvitta fyrir.
Það er greinilegt að við Hafdís Rósa erum í Jólaskapi,kíkjum hér og þar inn..takk fyrir kveðjuna...ég held bara að Jólasveinninn fari að koma hingað..en hann kemur með snjóstorm!
kveðja Ella.
Ella
15.12.2009 kl. 18:43
Er bara að líta hér við og kvitta fyrir komunni.
Takk fyrir kaffið!
Ella, ég bið að heilsa austur :) Þú lætur okkur vita ef einhver jólasveinninn verður seinna á ferðinni en vanalega...
Hafdís Rósa
7.12.2009 kl. 19:08
Ho,ho,ho.....
Það er nú gott að ekki er búið að loka hér,e´g kíkti inn í gær og úbs!Lokað...
Jólin nálgast og ég er í óða önn að senda til ykkar pakka..þinn verður sendur til Hafdísar systir..kemur fljótlega..kær kveðja til allra,Ella.
Ella
24.11.2009 kl. 18:59
Ryk..pússsstt!
Það er nú ekki vanþörf á að dusta rykið af Gestabókinni einu sinni enn...eru allir hættir að kíkja hér inn eða hvað?
Annars allt gott að frétta...langar í bæinn og bara spóka mig í bænum..smá jólastuð;-)
kveðja Ella.
Ella
3.11.2009 kl. 22:32
Takk Ella!
Ég skila kveðjunni!
Bið að heilsa líka til þín og þinna.
asben
3.11.2009 kl. 18:56
Sæta litla Dúlla!
Hæ..bara að setja smá kveðju hér..litla ömmuskottið þitt er svo mikil Dúlla..og hún er svo mannaleg...bið að heilsa þeim og öllum öðrum..hafið það gott,kv Ella.
Ella
18.10.2009 kl. 0:03
Takkelakk!
asben
16.10.2009 kl. 16:41
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Til hamingju með daginn Áslaug mín og megir þú njóta dagsins,kveðja Ella.
Ella
15.10.2009 kl. 7:06
Jibíi!!!!!!!!!!!!!!!
Nú er ég hér kát og glöð...en ég fatta þessar tölvur ekki neitt;-b
bæjó Ella.
Ella
5.5.2009 kl. 10:03
Dusta rykið af Gestabókinni...pússt
Sæl og blessuð,datt í hug að líta hér inn..á milli þess sem ég læri sænsku..mála....og fer í gönguferðir...er enn að bíða eftir vorinu...það er svo kalt..eða ég svo mikil kuldaskræfa...en þetta fer nú að koma..vorið...stjórnin..úrlausnirnar...bara halda í vonina..jæja en vona að þið hafið það sem allra best,kv Ella.
Ella
19.4.2009 kl. 22:14
Gangi þér vel!
Heyrumst:-)
asben
19.4.2009 kl. 12:41
Fer til Akureyrar í dag..
Jæja ég fer til Akureyrar í dag.
Væri alveg til í að fara með Lestinni hér fyrir ofan,en verð að láta mér nægja Rútuna...en ég verð í sambandi,kv Ella.
Ella
14.4.2009 kl. 8:39
Já hvað er að heyra þetta! Mér tókst með einbeittum vilja að fitna aftur. Þú verður bara að vera ákveðin!!!!
Nei annars það er bara fínt að vera mjór, ég er líka í megrun!!Gangi þér vel í aðgerðinni sem verður vonandi framkvæmd samkvæmt áætlun! Og þú rétt sleppur heim til að kjósa!! Eða skila auðu!!
asben
11.4.2009 kl. 20:26
Gleðilega Páska!
Hæ,ég var að máta sumarfötin mín og þau eru allt of stór á mig,ég hef lagt svo mikið af og tekst ekki lengur að fitna,þrátt fyrir páskaegg....en ég var að máta fötin af því að við ætlum til Þýskalands og Mallorca í sumar....gaman..gaman...kveðja Ella.
Ella
6.4.2009 kl. 17:28
Önnur tilraun til aðgerðar....
Sæl,jæja þa´er búið að láta mig vita af því að aðgerðin verður kl 8.00 á 21 Apríl n.k.
Vonandi stennst það nú,ég hugsa að ég fari til Akureyrar á Sunnudeginum 19 April,eiga kannski einn dag fyrir aðgerðina í ró og friði,svo fer ég heim aftur 24 April,ef allt gengur að óskum,jæja en nóg í bili,kv Ella.
Ella
28.3.2009 kl. 17:27
Fjölgun?
Herðu!Ég frétti að það væri von á ömmubarni....ef það er satt,þá er það frábært...ekki veitir af góðum fréttum...svona á síðustu og verstu.....kær kveðja til allra,Ella
Ella
25.3.2009 kl. 22:49
Það er leitt að heyra Ella mín. Þetta er nú meira klúðrið hjá þeim.
En 20 April rennur upp. og þetta klárast.
Kveðja Áslaug
asben
25.3.2009 kl. 18:22
Breitt aætlun
Sæl aftur,eg fer ekki i aðgerðina fyrr en 20 April,en eg er stödd a Akureyri nuna og fer i rannsoknina a morgun,það komu upp einhver mistök og þvi miður kemmst eg ekki að a Manudag,verð að sætta mig við það....kveðja Ella.
Ella
25.3.2009 kl. 7:18
Fer til Akureyrar í dag...
Jú ég fer í 6-8 vikna frí á eftir,ég fer til Akureyrar í dag,því það spáir svo leiðinlegu á morgun,Sævar kemur svo á Föstudag..ég fer í rannsóknir fyrir aðgerðina á Föstudag...kveðja Ella.
Ella
23.3.2009 kl. 8:04
Ferðu svo ekki í smá frí eftir þessa aðgerð.
Veikindafrí meina ég?
asben
22.3.2009 kl. 10:29
Já, lítið og krúttaralegt Kolaport....
Hæ,það er veðurblíðan hér núna og líka í gær....Kolaportið er opið í dag....annars vorum við á Árshátíð í gær fyrir Alcoa....ágætis hátíð...kv Ella.
p.s.nú fer að styttast í að ég fari til Akureyrar í aðgerðina.
Ella
16.3.2009 kl. 23:58
Er virkilega komið Kolaport á Reyðarfjörð, mér líst vel á það!
Og gott viðfangsefni; Rigningin...Hún er góð ef hún er góð..lalalalalah..!
asben
15.3.2009 kl. 15:39
Mini-Kolaport...
Sæl,ég var í Kolaportinu nýja á Reyðarfirði áðan...það lífgar upp á tilveruna hér...svo er líka sól og bræðir snjóinn,sem er gott mál...ég var að mála mynd sem ég ætla að skíra"mér finnst rigningin góð,tralalalala..."
kveðja Ella.
Elal
12.3.2009 kl. 20:13
Hæ! Ég var að koma heim úr sveitinni!
Við vorum þar í viku í bústað. Ofsalega fínt bara. Heitur pottur og letilegt líf, slatti af góðum gestum.
Þetta væri ég til í að endurtaka
asben
7.3.2009 kl. 10:07
Veður..............
Hæ aftur,það er miklu skemmtilegra að vafra um á þinni síðu,heldur en á "Fésbókinni"hálfgerður spurningaleikur í gangi það og fólk að segja frá því sem það er að gera núna t.d.að horfa á sjónvarp og fara í bæinn,uhu merkilegt....en helgarveðrið er ekki eins gott og ég vonaði,gaf smáfuglunum í morgun eins og alla frostdaga...þeir eru algjört krútt...ég hlakka mikið til að fara til Akureyrar um næstu mánaðarmót,ég verð hjá Rakel,það verður örugglega gaman...hlakka líka til að sjá ykkur í sumar...hafðu það gott,kv Ella.
Ella
6.3.2009 kl. 19:27
Helgarfrí..Jiibbíi.....
Það er komið helgarfrí hjá mér..yndislegt..er að vona að veðrið verði eins gott á morgun eins og í dag....annars hef ég hugsað mér að hafa það gott um helgina hvernig sem viðrar....jæja en góða helgi,bye Ella.
Ella
27.2.2009 kl. 20:18
Hæ! Já það er svo sem auðvitað að Davíð sé fullur af eftirlaunum. Hann er líka að fara í framboð!!
asben
26.2.2009 kl. 17:23
Vorkenna hvað..............
Já draumar geta ræst og Dabbi og fylgifiskar komnir út....þeim er engin vorkun,þeir fá fullt af eftirlaunum,svo það væsir ekki um þá....bless Ella.
Ella
25.2.2009 kl. 21:03
Ertu viss um það?
Nú fara allir að vorkenna honum svo voðalega mikið, og vilja tala við hann, og um hann,og við hann, og um hann,stuna:-(
Hafðu það gott , og gangi þér vel í aðgerðinni!
asben
25.2.2009 kl. 17:22
Síðasta viðtalið.....
Sæl Áslaug,ég verð 6-8 vikur í veikindafríi og ætla að nota tíman vel....
Heyrðu annars svo ég minnist nú aftur á Dabba %&%,þetta var síðasta viðtalið,he,he,
En allt í góðu,kv Ella.
Ella
24.2.2009 kl. 21:01
Hæ Ella! Ertu alveg týnd og tröllum gefin á Feisbókinni?!!
Hvað verður þú lengi í sjúkralegunni?
Alls ekki láta þig dreyma neitt um Davíð á meðan það er skelfileg sóun á tíma eða draumi! Ha ha ha!!!
asben
23.2.2009 kl. 19:05
I have a Dream.......
Já ég læt mig dreyma...þeir verða að koma þessu Seðlabankafrumvarpi í gegn og Dabbi burt..grrr,grrrr.
Annars var ég að fá staðfest að aðgerðin sem á að gera á mér verður 30 Marz..kveðja Ella.
Ella
18.2.2009 kl. 23:06
Þú ert algjör draumóramanneskja Ella mín!
Davíð er innmúraður í Seðlabankanum...
asben
14.2.2009 kl. 8:41
Laugardagur til lukku.....
Hæ,nú skrifa ég bara á hverjum degi,mig dreymdi góðan draum í fyrrinótt sem boðar gott og viti menn...eða ég trúi því allavega að það hafi verið góð skipti að fá Obama í staðinn fyrir Buska og í framhaldi af því held ég að draumurinn hafi boðað góð skipti í Seðlabankanum þegar" Dabbi $&%&/" fer...og þá kemur einhver eins góður og Obama!
Er að vinna í myndlistasýningunni...eigið góða helgi,kv Ella
Ella
13.2.2009 kl. 22:59
Jæja ertu komin á fésbókina..gaman fyrir þig! Líst vel á þetta með myndlistasýninguna!!
asben
12.2.2009 kl. 20:18
Summan er 8......................
Sæl,ætla bara að dusta rykið af hér..enginn látið heyra í sér lengi,en ég var að skrá mig á facebook eða hvað það heitir..."tímaþjófur"....annars ég fór að drekka sólarkaffi á Sunnudag...gott og gaman!
Ætla að halda áfram með myndina af Þór og kannski held ég myndlistasýningu á Facebook eða hvað það heitir,he,he,en góð kveðja héðan Ella..
Ella
5.2.2009 kl. 23:02
Ég verð með þér í anda, í sólarkaffinu á sunnudag.
asben
5.2.2009 kl. 19:28
Dabbi burt á morgun??
Ég trúi því ekki fyrr en ég sé það svart á hvítu að Dabbi fer úr seðlabankastólnum...en það verður gaman og kannski drekk ég sólarkaffi á n.k.Sunnudag og fagna því líka að hann sé ekki lengur bankastjóri,en hafið það gott elskurnar,kv Ella.
Ella
31.1.2009 kl. 11:34
Takk fyrir hrósið.
Neii,en hann er nú svo unglegur og smart,allar mínar vinkonur´úti eru svo skotnar í honum,bæ Ella.
Ella
30.1.2009 kl. 23:54
Þú ert bara fjan.. góð í þessu portret´teikniríi þínu Ella!
Þú skalt bara ekki yngja Þór svo mikið upp að hann þekkist ekki!!!!
asben
30.1.2009 kl. 20:54
Mynd af Þór..
Sæl og blessuð,ég er að reyna að mála mynd af Þór,mér tókst að yngja hann svolítið upp,en hann er nú svo unglegur.
Kveðja Ella.
Ella
16.1.2009 kl. 18:54
Jæja er að lagast í skapinu.....
Sæl og blessuð,já ég er að lagast í skapinu,það þíðir ekki að vera að bölsótast.
Bráðum byrjar Þorrinn og þá fer maður nú að huga að næstu matargóðgæti,þó ég viðurkenni nú að ég er ekki hrifin af súrmat,en hangikjöt,sviðasulta,slátur og harðfiskur finnst mér gott....
ég var að horfa á skífuna sem Þór sendi mér,það var svo gaman að sjá pabba og mömmu,mikið voru þau yndisleg,jæja en nú er komið nóg,hafið það gott,kv Ella.
Ella
11.1.2009 kl. 18:22
Já! Ég skil þig mætavel Ella!
Þetta eru veruleikafirrtir sauðir! Eina sem gildir er að láta í sér heyra, þá er kannski von til að þeir fatti að það er búið að segja þeim upp störfum fyrir löngu. Ástæðan: Afglöp í starfi.
Þversummur geta engan veginn verið fundnar upp af stjórnvöldum þessa lands. Þær eru of rökrétt útkoma.
asben
11.1.2009 kl. 12:48
Arg...garg..
Góðan daginn....ooooo ég er svo þreytt á þessu ástandi....helv..rikisstjórn og diavolo Davið seðlabankastjóri....
stundum er maður svo pirraður,það skeður ekkert...þrátt fyrir að fólk láti heyra í sér....já og svo er það ekki til siðs að ríkisstjórnin sé að skipta sér af manndrápum"Ísrael/Palestina"....Geir er nú algjör sauður.....arg..garg..´´Eg ætla að fara út að labba svo ég jafni mig kannski,en eigið góðan dag elskurnar,kv Ella.
p.s.og þessar ÞVERSUMMUR,voru þær fundnar upp af RÍKISSTJÓRNINNI....
Ella
7.1.2009 kl. 16:13
Hæ Ella! "Vertu til er vorið kallar á þig".......!!
Það er farið að birta pínku pons..
Og ég held áfram að gleyma helvítis summunni!
asben
6.1.2009 kl. 17:46
Er farin að bíða eftir vorinu.....
Sæl,ég er svo óþvolinmóð...ég er þegar farin að bíða eftir vorinu....langar svo í meiri birtu....nú er svo kalt í Þýskalandi,ætla að fresta Lestarferðinni til Frankfurt þangað til í sumar....jæja en nóg af bulli í dag..eigið góðan dag,kv Ella.
Ella
3.1.2009 kl. 11:42
Hæ Ella! Já kannski er þetta einmitt lestin sem fer til Þýskalands!!
Og af því ég er lestarstjóri, þá býðst þér, og öllum sem vilja frítt far með lestinni. Hvert sem er!
Ég sé að þú hefur fattað þetta með summuna,hí hí!! Ég er sjálf alltaf að gleyma henni!!
asben
2.1.2009 kl. 20:04
Lestin sem fer til Þýskalands....
Sæl,þessi lest gæti verið frá Þýskalandi og nánar tiltekið frá Frankfurt,þær líta nákvæmlega svona út og eru kallaðar S-Bahn......ég væri nú til í að skreppa til Frankfurt með henni þessari...en nóg í bili,kv Ella.
p.s.summsumma summ summ...summe..summen..summ..sipp summ ..summe...
Ella
2.1.2009 kl. 13:26
Ja hvur.........!
asben
1.1.2009 kl. 6:11
Hmm
Svo giftust Skrat og Sipp. Skrat Skratarat og Sipp Sippa Nipp og svo Skrat Skratarat Skrat Skúrum Skrat og Sipp Sippa Nipp Sipp Súrum Sipp.
Skrat sjálfur
31.12.2008 kl. 18:18
Ég lofa aðeins að ganga um gleðinnar dyr, Ella.
asben
31.12.2008 kl. 15:08
Gleðilegt ár!
Hæ,maður verður nú að bulla eitthvað á Þýsku líka hér"Gluck und Glas,wie leicht bricht das"þetta skilja nú allir örugglega,en gangið hægt um gleðinnar dyr í kvöld og nótt,kveðja Ella.
Ella
31.12.2008 kl. 11:31
Sipp, Sipp Sippa Nipp og Sipp Sippa Nipp Sipp Súrum Sipp
Hafdís Rósa
28.12.2008 kl. 9:13
Já þessi summa er einhver þvergirðingur bloggsamskiftum, því maður gleymir henni svo oft.
Ég mundi samt eftir henni núna!!!!!!
Summ summ summerumm sinnum summ....
asben
26.12.2008 kl. 11:03
Þversummur,hmmmmm......
Ég var nú svo treg að ég fattaði þetta ekki með þessa tölur til að komast hér inn,en fyrst og fremst..Gleðileg Jól og takk fyrir gjöfina Áslaug mín,vona að þið hafið það gott um hátíðina....hér er allt með ró og spekt,kveðja Ella.
Ella
18.12.2008 kl. 9:45
Það kann að vera að það þurfi að gera jólahreint, en hér inni er Ella alltaf að dusta af ryk, í gríð og ergi!!!!
asben
18.12.2008 kl. 8:29
Það þarf að gera jólahreint á ýmsum stöðum greinilega :)
Hafdís Rósa
17.12.2008 kl. 0:48
Hæ Ella, ég man ekki alveg heimilisfangið: Ég skal reyna að muna að spyrja á morgun!
Gott hjá þér að dusta af hjá mér! Takk :-)
asben
16.12.2008 kl. 18:58
Dusta af hér............
Sæl og blessuð....best að dusta rykið af Gestabókinni í dag....mig vantar heimilisfangið hanns Bjarna......en héðan er allt gott að frétta....kvefpestin að líða hjá og bráðum koma blessuð jólin....það er svo gaman að fylgjast með komu jólasveinana hjá þér Áslaug...kannski taka þeir Dabba með sér handa Grýlu gömlu....en bara óskhyggja,ha,ha,en hafið það gott og heyrumst um jólin,bless Ella.
Ella
6.12.2008 kl. 13:46
Takk fyrir innlitið Ella!
Já þeir koma, jólasveinarnir á réttum tíma!!
Ég er íhaldssöm eins og þeir!
asben
6.12.2008 kl. 10:42
Jólastemming!
Já...ég var að skríða framúr....fékk mér morgunverð,sem er ekki í frásögufærandi,nema að mjólkurfernurnar eru svo fallega skreyttar með jólasveinum....flott hjá þeim....ég bíð svo eftir þínum jólasveinum Áslaug!!En eigið góða helgi,bæ Ella.
Ella
29.11.2008 kl. 17:44
Gaman!! Það er svo gaman þegar jólaljósin koma hjá öllum Eða allflestum!
Ég var í bænum að mótmæla hinu og þessu!! Og versla í kolaportinu líka.
Kveðja til ykkar!
asben
29.11.2008 kl. 10:50
Hæ hæ, best að ég kvitti hérna líka, langt síðan ég var hérna síðast.
Við erum að fara að setja upp eitthvað jólaskraut hérna hjá okkur, erum eiginlega þau einu eftir hérna á þessum götuparti. Ég er viss um að allir bíða í ofvæni eftir því hvort við ætlum að skreyta eða ekki...þetta nýja fólk, ætlar það ekkert að fara að skreyta??? Nei þetta gengur ekki hehehe.
Nú styttist í að jólasveinarnir fari að koma, þá verður gaman.
Kveðja,
Hafdís
Hafdís Rósa
25.11.2008 kl. 20:44
Hæ Ella!
Það er aldrei nóg komið!!
Ég vissi að það yrði frestun á að þú færir í aðgerðina, einhver sagði mér það.
Hafðu það gott sjálf!!
kveðja.
asben
24.11.2008 kl. 17:41
Bara dusta rykið af Gestabókinni.
Sæl og blessuð,það er kominn tími til að kvitta hér,ég er nú bara búin að koma mér í pínu jólaskap,þrátt fyrir kreppu og ömurlega stjórnendur,er hætt að hlusta á þetta rugl,set bara músik á fóninn og dunda mér við að teikna.
Það er allt gott að frétta héðan,ætlaði bara að segja líka að ég fer í aðgerðina í enda Febrúar eða byrjun Mars á næsta ári,nánari fréttir seinna....en annars hafið það gott elskurnar,í huganum fæ ég mér jólakaffi með ykkur systrunum,en nú er nóg komið,kv Ella.
Ella
6.11.2008 kl. 22:24
Hæ Ella! Já gott að losna við Bússa! Pottþétt minnkar þá vopnaskakið líka!
kveðja asben!
asben
5.11.2008 kl. 18:54
Fleiri góðar fréttir!!
Heil og sæl öll sömul,jæja mér þótti það góðar fréttir að Obama skyldi vera kosinn...ég held að það verði gott fyrir allan heiminn,ekki veitir af......en hafið það gott,kv Ella.
Ella
30.10.2008 kl. 20:10
Áfram stelpur!
Sko stelpurnar okkar,þær unnu leikinn við Íra 3:0,
loksins góðar fréttir!
En hafið það gott,kannski koma fleiri góðar fréttir á næstunni,hver veit
kveðja Ella.
Ella
26.10.2008 kl. 14:45
Já takk fyrir Ella!
Máltæki eru góð, og góð ljóð ennþá betri.
Heimurinn endar kannski með því að brotna í þúsund parta´
Hann endar klárlega!!!
kveðja 'Aslaug
asben
26.10.2008 kl. 11:10
Meira af máltækjum!
Sæl og blessuð,ég er alltaf að lesa Þýsk máltæki,á enga bók með íslenskum máltækjum,því miður.
Og það er svona:Und wenn ich wusste,dass Morgen die Welt in tausend Stucke zerbrache,ich wurde Heute noch einen Baum pflanzen.
Martin Luther.
Þetta þýðir um það bil svona:Ef ég vissi að á morgun myndi heimurinn brotna í þúsund stykki,myndi ég planta enn einu tré í dag.En þetta eru svona hugleiðingar á síðustu og verstu tímum,en það er gott að lesa ljóð og góð máltæki svona yfirleitt,eigið góðan dag elskurnar,kv Ella.
Ella
19.10.2008 kl. 11:55
Smá máltæki!
Hæ,ég ætla að skella hér inn litlu máltæki á Þýsku,sem gæti átt við á þessum tíma:
Schaue vorwarts,nicht zuruck,neuer Mut ist Lebensgluck!
Johann Gottfried Herder.
Þetta útleggst eitthvað á þessa leið:
Horfðu framávið,ekki til baka,ný von eða kjarkur,er hamingjutákn!
Þetta ráðlegg ég nú öllum,kveðja Ella.
Ella
11.10.2008 kl. 16:27
"Þó þorskurinn sé ekki skepna skýr, hann skömm hefur Bretanum á"
Það er nú hægt að rifja ýmislegt upp. allt í lagi með það og sonna!
asben
11.10.2008 kl. 11:41
Þorskastríð????
Hæ og Hó,ég verð nú alveg bara kvumsa þegar ég les fréttirnar á netinu,að vera að rifja upp Þorskastríðið í enskum blöðum er of langt gengið,því í fjáranum voru Englendingar að hleypa þessu íslenska útrásarliði inn í landið eftir þetta Þorskastríð??Þeim var nær!
Æ,annars er þetta leiðinlegt allt,ætla að fara út að ganga,það er fallegt veður úti og hreint loft,hafið það gott
Ella.
Ella
9.10.2008 kl. 9:36
Gott að þér hlýnaði um hjartaræturnar Ella mín! Gaman að þú skulir vera komin aftur á stjá hérna hjá mér!!
asben
8.10.2008 kl. 18:01
Guten Tag Liebe Leute!
Það yljaði mér um hjartaræturnar að sjá Þýsku á blaði hér....en ég er nú bara búin að vera orðlaus í nokkra daga...en annars allt í góðu hér,það var gaman á Akureyri,hittum Löbbu og c/o og Rakel og c/o,Þór og Solla komu og skemmtu sér með okkur,jæja en nóg af bulli í bili,
Tschuss Ella.
Ella
3.10.2008 kl. 11:22
Hafdís, takk fyrir!!
asben
3.10.2008 kl. 9:14
Mér fannst þýðingin þín miklu skemmtilegri.
Hafdís Rósa
2.10.2008 kl. 16:34
Það er því miður grínlaust að ég kann lítið sem ekkert í þýsku!
asben
2.10.2008 kl. 16:09
Þetta var nú skemmtileg þýðing hjá þér :) Ég veit nú ekki hvort þú ert að grínast eða ekki....en rétt þýðing er: á morgun, á morgun en ekki í dag, segir allt lata fólkið ;)
Hafdís Rósa
2.10.2008 kl. 9:05
Ég er engin Þýskukona, svo ég skil ekki mikið, en ég reyni.Morgunn, morgunn,nóttin er búin.
Segja núna örgu hjúin.
asben
2.10.2008 kl. 8:39
Til hamingju með nýja útlitið. Sumarlegt og fínt.
Nú ætla ég að slá um mig á þýskunni þar sem þú ætlar að fara á morgun út að ganga :)
Morgen, Morgen, nur night haute, sagen alle faule laute :)
Hafdís Rósa
27.9.2008 kl. 21:32
Gangi þér voða vel Ella mín:-)
Ég vildi að ég væri að gera eitthvað svona skynsamlegt eins og þú, en það er ekki því að heilsa. Ég er að éta súkkulaði.
Ætla að hætta því á morgun, og fara út að ganga!
asben
27.9.2008 kl. 17:00
Er að mála!
Hæ,ég er að mála og nú vanda ég mig betur en síðast.Annars allt gott að frétta,en mér leiðist,Sævar er að vinna alla helgina..
ég fór á rúntinn hér á Reyðarfirði í morgun,það var voða gaman,ha,ha,
en nú ætla ég út að labba,það er miklu skemmtilegra,en eigið góða helgi,kv Ella.
Ella
14.9.2008 kl. 19:34
hæ Ella Gaman að heyra í þér, allt í sóma hérna megin:-)
asben
11.9.2008 kl. 19:01
Sæl og blessuð,langt síðan ég hef látið heyra í mér,enda verið mikið að gera í vinnunni,það eru svo margir í fríi ennþá.
Í dag á Hrefna mín afmæli,ætla að hringja í hana á eftir.En vonandi hafa það allir gott á þínum bæ,bið að heilsa,Ella.
Ella
27.8.2008 kl. 22:40
Hæ Ella!Já þeir eiga þær alveg skilið!
Ég hef nú aldrei séð þetta orðudót í nærmynd fyrr en í fréttunum áðan, þegar Ólafur var að hengja þær á þá. Hann er bara kominn í heilmikla þjálfuní orðuhengingum!
Jú og gott að Paul er kominn aftur!!
kveðja
Áslaug
asben
27.8.2008 kl. 21:21
Enn um strákana okkar!
Sæl og blessuð,ég skrifa enn um Handboltastrákana okkar,maður er nú stoltur af þeim og þeir eiga orðunar skildar.En svo af öðru ánægjulegu efni,það er að Paul Ramses skuli vera kominn heim til konu og barns,vona að þeim eigi eftir að farnast vel hér og megi dvelja um aldur og æfi hér á landi!Jæja en þetta var nú bara smá kveðja frá mér,bless Ella.
p.s. Alltaf flottar myndir frá þér Áslaug!
Ella
24.8.2008 kl. 23:18
Þakka þér fyrir falleg ummæli Hörður!
asben
22.8.2008 kl. 17:12
Jibbbbíii............
Þeir eru frábærir strákarnir okkar í handbolta!!!!!!!!!!
Það er svo gaman af þessu,kv Ella.
Ella
21.8.2008 kl. 19:39
Þeir eru frábærir!
Hvernig sem allt fer eru þeir frábærir!!!!!!!!!!!
Það var geggjað veður hér í dag,en ég að vinna"snökt"
Bæjó Ella.
Ella
21.8.2008 kl. 14:11
Já gott hjá þér Ella,ekki vanþörf á að þurrka af.
Það er best að spá engu um næsta leik í handboltanum! Bara horfa!!!
asben
20.8.2008 kl. 17:20
Aðeins að þurrka rykið af´Gestabókinni!
Sæl og blessuð,þetta var nú flott hjá strákunum okkar í handboltanum í morgun....
það verður spennandi að fylgjast með næsta leik,jæja en allt í góðu,kv Ella.
Ella
7.8.2008 kl. 23:03
Vona að ferðin gangi vel hjá ykkur og þið fáið gott ferðaveður!
SJÁUMST Á LAUGARDAGINN.
asben
6.8.2008 kl. 17:31
Sælir nú!Nú fer að styttast í að við hittumst á ættarmóti,ég held að það verði bara gaman,ég er alla vega búin að pakka niður góða skapinu og hlýjum fötum,ha,ha.
En sjáumst kát og hress,bæ Ella.
Ella
2.8.2008 kl. 11:55
Jú það var gaman að skoða virkjunina,en mér fannst hún ljót eins og allt umhverfið þarna,hefði sennilega aldrei komið á þessar slóðir,ef ekki væri virkjunin.
Kær Kveðja Ella.
Ella
29.7.2008 kl. 12:50
Já var ekki gaman að skoða þessa umdeildu virkjun?
Sé ykkur. Kv. Áslaug
asben
28.7.2008 kl. 21:09
Já takk fyrir upplýsingarnar,Þór hringdi í mig og staðfesti þetta,ég hlakka svo til.....
Annars allt gott að frétta úr þokunni héðan....
Fórum að skoða Kárahnjúkavirkjun á Laugardag.....
jæja en bestu kveðjur Ella.
Ella
23.7.2008 kl. 21:01
Ég veit voða lítið meira um hvað á að gera en holugrilluð lambalæri hef ég heyrt talað um.
En annars held ég að fólk eigi að koma með eitthvað með sér til að nærast á.
Svo er um að gera að hafa gaman af þessu!
Og skemmta sér. Sjáumst en sláumst ekki!
Kveðja.
asben
23.7.2008 kl. 17:21
Ættarmót.............
Hæ nú fer að styttast í ættamótið og ég er að reyna að komast að hvernig það verður,á að grilla eða eitthvað annað????
Veist þú eitthvað???
Jæja en vonandi fæ ég bráðum upplýsingar,kær kveðja til allra,bæjó Ella.
Ella
19.7.2008 kl. 16:06
Sól og blíða!
Sæl hérna megin,já það er sól hér í dag,en hún hefur ekki náð að skína í gegnum þokuna að undanförnu....
ég var að tala við Styrmi,hjá þeim er ekkert sérstakt veður,en það gerir ekkert til hann er á kafi í vinnu,það vantar svona menn í þetta,skrýtinn heimur í öllu þessu atvinnuleysi!
Hrefna og co eru á ferðalagi í Danmörku sem stendur,þau ætla í Legoland..........
bið að heilsa öllum.. Ella.
Ella
7.7.2008 kl. 11:59
Til hamingju með myndina!
Hún verður kannski frægt listaverk hahaha!
kveðja Áslaug
asben
6.7.2008 kl. 11:01
Sunnudagsskap!
Hej,hej,ég er nú í flottu skapi í dag...ég er búin að mála mín fyrstu mynd og viti menn,ég ´fór í svo gott skap við að mála myndina,en þetta er nú ekkert frægt listaverk samt,en á bak við myndina búa margar þrár og hugsanir,nefninlega þrá eftir hjólinu mínu og skóginum úti í Þýskalandi.Myndina mætti nefna"hugurinn ber mig hálfa leið,eða handan hafsins bíður mín þessi elska"hjólið mitt í skógarrjóðri!!
Rómantíst.....
jæja,en ég óska öllum góðrar og rómantískrar helgar,kv Ella.
p.s.ein spurning"er hann Benni kominn með kærustu???
Ella
5.7.2008 kl. 12:05
Gangi þér vel í listinni:)
Ég var einmitt að mála og kíkti hér inn til að hvíla hugann og gá hvort hér væri einhverja hugljómun að finna.
Og sá þá einmitt að þú hafðir skrifað í gestabókina
asben
5.7.2008 kl. 11:30
Hæ,ég sit hér og bíð eftir að andinn komi yfir mig....ætla nefninlega að taka fram olíulitasettið í fyrsta skipti...ég þarf að læra margt!!!!!
Það er þoka hér fyrir austan,svo kannski tefur það fyrir andanum,ha,ha,
jæja en best að drífa sig í stuð....
eigið góða helgi,kv Ella.
Ella
3.7.2008 kl. 20:11
Það var yndislega gaman úti,sérstaklega að hitta krakkana.
Við gerðum fult af skemmtilegur hlutum saman og tókum fullt af myndum.....
heyrumst Ella.
Ella
30.6.2008 kl. 13:21
Já var ekki gaman úti?
Velkomin aftur, og sjáumst!
kveðja til ykkar Ella.
asben
29.6.2008 kl. 19:19
Ég er komin heim!
Sæl og blessuð,við erum komin heim eftir alveg frábært sumarfrí í Svíþjóð....núna tekur vinnan við aftur,en við eigum svo smá frí um miðjan Júlí.....og svo hittumst við á ættarmóti...vonandi...
jæja en heyrumst,kv Ella.
Ella
28.6.2008 kl. 7:14
Gaman að sjá þig í heimsókn Henry og vertu ævinlega velkominn.
Bestu kveðjur til þín og þinna.
asben
23.6.2008 kl. 17:26
Loks fan ég þig hér kæra frænka. Ljómandi síða hjá þér, verð reglulegur gestur. Bestu Kveðjur úr Vesturheimi.
Benedikt Henry
11.6.2008 kl. 19:08
Hittingur!
Já vonandi hittumst við þann 28...við verðum hjá Þór bæði fyrir og eftir ferðina....
Ég minni á að Hafdís Ben á afmæli á morgun...kveðja Ella.
Ella
7.6.2008 kl. 15:13
Hæ Ella, ég fer í sumarfrí eftir 2 vikur og hlakka alveg rosalega til!
Ég óska ykkur Sævari góðrar ferðar út:) Og að þið njótið sumarsins sem best.
Sé ykkur kannski þann 28.
Sendi kæra kveðju til krakkanna ykkar!
Bonsjúr!
asben
7.6.2008 kl. 14:52
Ertu að fara í frí líka??
Áslaug ertu að fara í frí?Ef þú ert að fara,þá óska ég þér gleðilegs og góðs sumarfrís!
Ég er svona að tína saman eitthvað í tösku til að fara með,aðallega nammi og harðfisk handa krökkunum.En kannski hittumst við þegar við komum til baka 28 Júni,kveðja Ella.
Ella
5.6.2008 kl. 19:57
Sumarfrí...Jibbíí....bráðum....
Sæl og blessuð,það er orðið langt síðan ég kvittaði hér,en bráðum fer ég í frí....hí,hí,hí,
vona að allt sé í góðu fyrir sunnan.
Hér er allt í fína,bara svoldið mikil þoka stundum...
bið að heilsa öllum,
Ella.
Ella
28.5.2008 kl. 21:26
Ég er komin í náttfötin....
Ha,ha,Áslaug.....
Já svona er það þegar maður liggur í óráði og veikindum,þá ruglar maður bara...
ég held að ég ætti að fara að koma mér undir fiður og afrugla mig....
góða nótt,Ella.
Ella
28.5.2008 kl. 19:58
Sjá hvað þetta getur komið asnalega út stundum þegar maður skrifar í gestabókina.
Ég get bara ekki orða bundist.
asben
28.5.2008 kl. 19:54
Það hversu náttfatapartý eru skemmtileg fer svoldið eftir heilsufarinu á fólkinu.
Annars fór ég
í svalandi náttfatapartý áðan. Partýgestir voru fáir ef frá eru skilin þau mr.Pioneer og mrs.Patriot,og svo ég.
Veðrið var alveg ljómandi, Og þau litu út fyrir að ætla að bera ríkulegan ávöxt í sumar.
asben
28.5.2008 kl. 18:42
Hæ ég tók því ekki að þú værir kvikindisleg,mér þótti þetta bara fyndið...
En góðan bata,vonandi kemur sólin og blíðan líka fyrir sunnan,bæjó Ella.
p.s.annars eru náttfatapartý skemmtileg.
Ella
27.5.2008 kl. 22:19
ég er í endalausu náttfatapartýi og fíla það enganveginn.
Ástæðan er sú aðég fékk flensu og "sló svo niður" eins og það kallast á læknamáli.
Njóttu austfjarðaveðursins góða og hlýja.
Ég ætlaði ekki að vera kvikindisleg eða þannig!!
asben
26.5.2008 kl. 18:19
Alein í náttfatapartý!
Neii,ég var bara í náttfötunum,það er svo notalegt,
kveðja Ella.
Ella
26.5.2008 kl. 0:13
Varstu kannski í júróvison dressinu?!
asben
25.5.2008 kl. 12:58
Sól,sól skín á mig!
Já,ég er sko búin að vera úti í sólinni,enda kominn sunnanvindur þýður.
Klæðaburðurinn var nú heldur fáklæddur og fannst mér fyndið hvað Þulurinn var hrifinn af klæðaburði kvennana,en tuðaði svo yfir óhnepptri skyrtunni á Rússanum sem vann,en svona er þetta,ha,ha,
En njótið dagsins,kv Ella.
Ella
25.5.2008 kl. 11:36
Jú þeir voru voða sætir í sér við okkur greyin.
En við gáfum þeim líka 12 stig, svo það hallast ekki á.
Ég hékk yfir þessari keppni með hálfum huga þó,það eru ekki lögin sem heilla mig satt best að segja,né heldur hallærislegur klæðaburðurinn á
keppendunum almennt. Þá er bara eitt eftir og það er stigagjöfin, hún er soldið spennandi.
Eigðu góðan dag í sólinni:)
asben
24.5.2008 kl. 22:20
Danir eru vinir okkar!
Jú ég fékk mér smá styrk í glas...
Og eru ekki Danir góðir að gefa okkur 12 stig!!
Já og svo á víst sumarið að koma á morgun"með sunnanáttinni"
jæja en góða nótt,
Ella
Ella
24.5.2008 kl. 18:46
Ella mín, hvurslags er þetta,þú hlýtur að vera lasin.
Sestu nú í sófann til að horfa á júróvíson. Og ekki gleyma að fá þér eitthvað hlýlegt í glas.
Góða skemmtun í kvöld:)
asben
24.5.2008 kl. 16:15
Brrr,mér er kalt.......
Jæja,þá er sumarið komið,en mér er kalt...fór út að labba og sat úti á svölum,en mér er kalt.
En ég er orðin vön sumrum í Þýskalandi og þar er heitt á sumrin,en nú ætla ég að hætta að kvarta og koma mér í Eurovision-skap,vona að flotta parið okkar komist sem lengst"áfram Ísland!"kveðja til allra Ella.
Ella
22.5.2008 kl. 21:59
Já aldrei þessu vant er ég bara ánægð með "framlag Íslands til keppninnar"!
Ætli við vinnum þetta ekki bara! Yrði ekki hissa. Kveðja:)
asben
22.5.2008 kl. 21:06
Jæja loksins komust við inn í Eurovison,þau stóðu sig bara vel og voru landinu til sóma.
En sumarið kemur á Laugardag hér og ég á frí!Góðar kveðjur til allra,Ella.
Ella
17.5.2008 kl. 20:15
Hæ Ella:)!!!
Það mætti halda að þú værir skyggn.
Hvernig sástu að það þyrfti að þurrka af hérna??
Ég flýtti mér að þurrka af líka!Ekkert ryk lengur. Sjúkk!
Bless 'aslaug
asben
17.5.2008 kl. 11:18
Þurrka líka rykið af hér!
Hæ og hó og ligga ligga lá!Það er betra veður hér en á suðurlandi.Það er bara stillt og bjart hér á Fjörðunum og við í helgarfríi.
Óska öllum góðrar helgar,kv Ella.
Ella
15.5.2008 kl. 13:31
Sæl og blessuð mystíska nafna mín!
Hvað ertu að vafra þetta um!?
Festu þig í sessi t.d.
hér á 123.is með þínar eigin frábæru myndir. Ég skora á þig að gera það.
Takk fyrir komuna og kveðja til þín:)
asben
15.5.2008 kl. 12:01
MIST
Sæl nafna & góðan dag
er að vafra og skoða, finn þá líka þessa fínu síðu. Hrífandi myndir & ljóð.
Sendi þér mínar bestu kveðjur
aslaugþor
13.5.2008 kl. 19:36
Já komdu blessuð og sæl! Og gaman að heyra í þér. Alltof langt síðan við höfum sést. Kveðja til þín. :)
aslaugben
13.5.2008 kl. 17:13
Hæ
Heil og sæl! var að fá sendan link á þessa flottu síðu!til hamingju! kveðja
Helga Olivers
12.5.2008 kl. 17:40
Nú þýðir ekkert að vera með svartsýni í sambandi við veðrið.
ÞAÐ VERÐUR GOTT VEÐUR Í ALLT SUMAR.
Af þvi ég segi það!
asben
12.5.2008 kl. 9:18
Vor í lofti á Austurlandi líka!!
Jæja vaknaði við sól og blíðu í morgun,loksins vor,þó það endist kannsi bara í nokkra daga!
Börnin mín í útlöndum voru í sólbaði,þar er á milli 20-30 gráður þessa dagana,allt í góðu þar,átti að skila kveðju frá þeim,jæja en óska öllum góðs dags,kv Ella.
Ella
11.5.2008 kl. 16:49
Jabb, ef ég ætti búð og hefði svona sölumann í vinnu, myndi ég nú reka hann á stundinni vegna skorts á fagmennsku!
asben
11.5.2008 kl. 8:11
Brandari!
Og hér kemur brandarinn:Eldri dama gengur inn í Gull og Silfur á Laugavegi og fer að skoða í kring um sig í rólegheitunum.
Hún sér gríðarlega fallegt demantsarmband og gengur að sýningarborðinu til að skoða það nánar.
Þegar hún svo beygir sig yfir borðið til að sjá betur,prumpar hún óvart.Hún fer mjög hjá sér og lítur vandræðalega kringum sig til að athuga hvort nokkur hafi tekið eftir þessu litla slysi hennar og vonar jafnframt að það komi ekki einhver sölumaður akkúrat meðan lyltin svífur um hana.
Hún snýr sér varlega við og til að fullkomna martröðina,stendur ekki bara sölumaðurinn beint fyrir aftan hana!
Svellkaldur sölumaðurinn sýnir fullkomna fagmennsku þegar hann heilsar eldri dömunni og spyr hvort hann geti aðstoðað hana á einhvern hátt?
Mjög vandræðaleg,vonar sú gamla að sölumaðurinn hafi ekki staðið fyrir aftan hana einmitt á þessu viðkvæma augnabliki rétt áðan,spyr hún ,hvað kostar svo þetta fallega demantsarmband?
Hann svarar:
Kæra frú,ef að þú prumpaðir bara yfir því að líta á það,áttu eftir að skíta upp á bak þegar þú heyrir verðið!!
Ella
7.5.2008 kl. 15:16
Já, nema ég verði þá búin að koma mér í sveitina:)
En hittusmst þá bara þarnæst!
asben
6.5.2008 kl. 19:48
Hittumst bara næst!
Sæl,við hittumst bara næst þegar við komum frá Svíþjóð þann 28 Júni,en þá verðum við eina nótt hjá Þór og Sollu,bæjó Ella.
Ella
5.5.2008 kl. 22:00
Jæja eruð þið komin aftur heim í heiðardalinn? Ég hélt að við ætluðum að hittast aftur í dag!? OG reyndi að hringja í þig, en síminn þinn var dauður.
En ég vona að það hafi verið gaman í Eyjum:) Og mikið fjör!
Kveðja Áslaug
asben
5.5.2008 kl. 18:00
Er komin heim á ný!
Sæl og blessuð og takk fyrir nett spjall á Laugardag.Við erum komin heim eftir frábæra helgi,það var rosa gaman og allt ferðalag gekk mjög vel,biðjum að heilsa öllum,kv Ella og Sæbi.
Ella
26.4.2008 kl. 19:10
Já sæl,ég kem á Laugardag n.k.kv Ella.
Ella
26.4.2008 kl. 17:47
Hvaða dag kemurðu í bæinn?
Það er sumarveður hér í dag.
Kveðja til ykkar
asben
24.4.2008 kl. 11:03
Gleðilegt Sumar!
Við óskum öllum Gleðilegs Sumars og þökkum fyrir veturinn,kveðja Ella og Sævar.
Ella
21.4.2008 kl. 13:41
Takk fyrir Ingó, gaman að lesa þetta.
aslaugben
21.4.2008 kl. 12:21
Var að skoða síðuna hjá þér Áslaug, flott hjá þér
kveðja Ingólfur G
Ingólfur G
12.4.2008 kl. 16:45
Til hamingju með daginn eftir á Bjarni minn,kv Ella.
Ella
12.4.2008 kl. 13:13
Vorið er komið, ekki bíða lengur!
Ég óska þér líka góðrar helgar. Það er líka afmæli hér, sem hefði átt að halda uppá fyrir viku að réttu lagi, Bjarni átti afmæli þann 7.
asben
12.4.2008 kl. 10:06
Enn um afmæli!
Já sæl öll sömul,enn um afmæli,hún Rakel átti afmæli í gær og Dalli á morgun og óska ég hér með báðum til hamingju.....
en annars er ég að bíða eftir vorinu,löng bið það!
En annars er ég voða hress,búin að skúa út úr dyrum og baka köku!!
Fór í sund í gær á Eskifirði"Efnalaugin fræga",eftir það er ég laus við alla bakverki og eins og ný manneskja...það var mikið að gera í vinnunni,búið að starta upp 336 kerjum og allt komið í gang og því voru 3 daga veisluhöld"flottur matur og músik spiluð undir"voða flott,jæja en ég óska öllum góðrar helgar,kv Ella.
Ella
9.4.2008 kl. 17:11
Jón átti afmæli í gær!
Hæ og Hó,hann Jón á Velli átti afmæli í gær.Ég frétti að það væri farið að snjóa aftur fyrir sunnan,hér er ennþá snjór,en er að hlýna örlítið.........
vona að allir hafi það gott,kv Ella.
Ella
30.3.2008 kl. 18:20
Hæ Ella! Farðu vel með þig og láttu stjana við þig!(Sævar)
Núna er loksins að komast lag á síðuna mína eftir heilmiklar breytingar hjá þeim bloggstjórnendum hér.
Ég var að skoða þetta aðeins, hvað þeir eru búnir að vera að brasa, og var bara mjög ánægð með þetta hjá þeim:)
Þakka þér fyrir þitt vísnainnlegg, þetta er fín vísa. Það væri nú gaman að skella sér heim til Jóns á Velli snöggvast og hitta þig þar!
Góðan bata asben
Áslaug
30.3.2008 kl. 10:38
Er lögst í flensu..........
Ég er komin með flensu,enda engin furða,maður smitast af heimilisfólki og vinnufélögum....
Ligg í rúminu og er að reyna að finna mér eitthvað til dundurs og viti menn,kom ekki þetta vísutetur upp í huga mér,hlustandi á veðurfréttirnar!
Og hún er svona:
Fjarðarheiðin ófær er,
af þessum veðraskelli,
það er best að koma sér,
heim til Jóns á Velli.
höfundur:Ella Ben.
Ella
26.3.2008 kl. 21:47
Takk fyrir:)
Ég hlakka líka til vorsins, og það ekkert smá.
Ég vona að það fara að koma til okkar.
asben
26.3.2008 kl. 20:50
Er ekki kominn tími til að kvitta hér!
Sæl,ætla að byrja á að hrósa vísnaskáldskapnum þínum!!
ég er að bíða eftir að andinn komi yfir mig aftur við teikningarnar......
en ég skrapp í bæinn í dag"Egilstaði"lét klippa mig og rölti svo í búðir að skoða sumarklæði fín(ekkert smá bjartsýn!)jæja en féll fyrir sætri gollu,sem hægt er að bregða yfir ískaldar axlirnar í gjólunni,ég er orðin svolítið leið á vetrarklæðum,hlakka mikið til vorsins....
jæja en nóg í bili,kv Ella.
Ella
21.3.2008 kl. 10:59
Hérna er linkurinn á pioneer woman þar sem hún bloggar http://thepioneerwoman.com/
Og hér er svo linkurinn á matreiðslusíðuna hennar: http://www.thepioneerwomancooks.com/
Hafdís
18.3.2008 kl. 21:53
Ég fer í páskafríið.............
Hæ,bara einn vinnudagur og svo frí í marga daga......
Var að tala við Styrmi Eilífðarstúdent,sem ætlar að klára á þessu ári,hann var að fá nýjan bíl"Audi"...
Kisurnar hanns biðja að heilsa öllum köttum á Íslandi.....
jæja en nóg af bulli og hafið það gott,kv Ella.
Ella
17.3.2008 kl. 21:37
Já við hérna eigum líka von á langri helgi.
Við vorum að passa rosalega krúttlega tík í dag. Hún heitir Perla og heldur að hún sé prinsessa. Það er líka alveg rétt hjá henni!
Hún fékk okkur út í göngu með sér,og kom í veg fyrir að við lægjum bara í leti í dag, eins og við hefðum annars gert:)
Kv. Áslaug
asben
17.3.2008 kl. 20:05
Vorþreyta!
Ég er í svo miklu letikasti,kannski er þetta vorþreyta í mér....en það er kominn tími til að kvitta hér.....
En ég var að frétta í dag að ég þarf ekki að vinna á frídögunum,ég ætla að njóta þess og slappa af,vona að sem flestir fái líka langa páskahelgi,bæjó Ella.
Ella
1.3.2008 kl. 13:42
Já þær eru allar komnar heilu og höldnu.
Einmitt þessa stundina eru þær að bruna upp á Snæfellsjökul á sleða, ásamt Bjarna, Benna, Hafdísi og Jóhanni.
Mér sýnist þau vera að hreppa alveg dásamlegt veður,þó það sé sennilega smá skýjahula á toppinum á jöklinum. En hún gæti horfið, það er allavega alveg skafheiður himinn hér, og sólskin:)
kveðja Áslaug
asben
1.3.2008 kl. 10:10
Velkomin til Íslands Charmain!
Hæ,vonandi hafa Charmain og fjölskylda hennar komist heilar á húfi til Íslands og ferðin gengið vel.
Óska ykkur alls góðs og skemmtunar saman,kveðja Ella.
Ella
28.2.2008 kl. 1:04
Gæti verið góð hugmynd.
Ég er að fara í bólið, því ég þarf að vakna fyrir allar aldir í fyrramálið og taka á móti gestum.
Charmaine ásamt mömmu sinni og frænku eru um það bil að fara í loftið. Frá Boston til Íslands u.þ.b. 6 tíma flug framundan hjá þeim.
asben
27.2.2008 kl. 17:14
Afmælisgjöf?
Hæ,Labba sagði að þau ætluðu að gefa honum útsýnisflug yfir Akureyri og Eyjafjörð....
Ég veit ekki hvað maður gefur áttræ´ðum manni,en heilsa hanns er nú orðin svo slæm og hann getur ekki gert margt...
En ég veit að þau fara oft í bíltúr og eru með nesti...
kannski vantar þeim bara sæta Nestiskörfu með öllu í og sætu teppi sem passar við..."Picnic-Basket"....
ég meina körfu með nesti og öllu tilheyrandi....
en bara hugmynd,bæjó Ella.
Ella
26.2.2008 kl. 22:47
Já alveg rétt hjá þér!
Hvað ætli áttræður maður vilji í afmælisgjöf, heldurðu?
Það þarf að komast að því.
Kv. Áslaug
asben
26.2.2008 kl. 22:21
Svei mér þá!!!!!!!!!
Ég var nú búin að skella þessu inn áður en ég var búin að skrifa til enda og enda þetta bara núna með kveðju Ella.
Ella
26.2.2008 kl. 22:19
Dalli verður 80 ára bráðum!
Hæ,ég var að tala við Löbbu,hún var í svaka stuði og ég kommst að því að Dalli verður áttræður 13 Apríl n.k.
Ella
24.2.2008 kl. 12:42
Konudagur í dag!
Hæ og Hó,ég var að skríða framúr og er nýbúin að borða síðbúinn morgunverð,sem var mjög góður eins og alltaf þegar við eigum helgarfrí,því það eru allir frídagar konu og bóndadagar á þessu heimili.
Það er blískapar veður og er stefnt í að fara í göngutúr í dag...eigið góðan sunnudag,kv Ella.
Ella
23.2.2008 kl. 17:34
Takk fyrir hólið,það hvetur mig áfram,gott að myndin var ekki skemmd hjá póstinum,
það er allt orðið hvítt af snjó hér aftur,en vorið er að koma í Þýskalandi.....
kær kveja til allra Ella.
Ella
23.2.2008 kl. 8:56
Hæ Ella! Myndin er komin og allt í lagi með hana.
Þetta er alveg frábær mynd af Charmaine og lík henni.
Þú hefur greinilega hæfileika á þessu sviði.
Það er ekki öllum gefið að ná góðum andlitsmyndum.
Ég hvet þig til að halda áfram að teikna og mála:)
kveðja Áslaug
asben
22.2.2008 kl. 17:56
Sendi myndina.
Hæ og Hó,ég sendi myndina til Bjarna og Charmain í gær,vona að hún komist óskemmd með póstinum....
Héðan er allt gott að frétta og helgarfrí framundan......
ætlum að njóta þess að fara í sundlaugina á Eskifirði á morgun...
bið að heilsa öllum Ella.
Ella
14.2.2008 kl. 22:48
Kæri fréttaritari minn af austurlandi! Gaman að heyra góðar veðurfréttir frá þér. Og gaman að heyra um Caroline litlu frá Kenya.Ég á stuðningsbarn í Pakistan hann heitir Nouman og ætlar að verða prestur.
Kv. Áslaug
asben
14.2.2008 kl. 19:42
Sorry,ég skrifaði Kenya vitlaust án y.....Ella
Ella
14.2.2008 kl. 19:40
Hæ,hæ,jæja þá er nú farið að hlýna í veðri og snjórinn að fara........
ég var að fá fréttir af henni Caroline litlu frá Kenia,en hún er stuðningsbarnið mitt.Hún er 6 ára snót og dugleg að læra í skólanum,sem betur fer er allt með kyrrum kjörum í nágrenni við Þorpið sem hún býr í,en eins og flestir vita er mikill órói í Kenia þessa dagana.Ég var að vonum fegin að fá góðar fréttir af henni....en þetta var nú svona smá fréttaskot,bless Ella.
Ella
10.2.2008 kl. 19:42
Hæ Ella
Skjótt skipast veður í lofti bæði í pólitikinni og fyrir utan gluggann. Það er svo satt!
Og ég er búin að liggja í flensu:
En svo er líka Bjarni kominn og það er gaman að sjá hann aftur:)
Það er öldugangur í þessu! Ég hef svo ekkert heyrt í Þór síðan hann kom heim.
Enda er eg búin að vera svo slöpp af flensunni að ég hef ekki haft orku í að hringja í hann. En mér er að batna!! Vonda veðrið fer vertu viss. kveðja asben
asben
9.2.2008 kl. 15:22
Rok,rok,rok....
Vonandi eru ekki allir foknir út í veður og vind í bænum...
ég talaði við Þór sem er kominn heim heill á húfi,hann hefði nú helst viljað snúa til Kanari aftur.....
við sluppum nokkuð vel við vonda veðrið...
jæja,en vonandi hafa allir það gott,er Bjarni kominn?
kveðja Ella.
Ella
6.2.2008 kl. 22:11
Corel draw
Heheh, það hefði verið nær fyrir þig að segja nafnið aftur. Ég var alveg búin að gleyma því að ég spurði þig að þessu, rétt svo sá svarið :þ
Hafdís
5.2.2008 kl. 17:32
Fékk bollur og saltkjöt og baunir í dag!
Jú,maður kann nú svosem að baka bollur,bara nenni ekki...en nú er verið að elda saltkjöt og baunir,svo fékk ég allan pakkan í dag...
Gaman fyrir ykkur að fá Bjarna og Charmain og fjölsk í heimsókn...kv Ella.
Ella
4.2.2008 kl. 22:51
Já eg skelli mér bara!
Mig vantar bara peninga og frí. Ég á sólgleraugun. Og hnýti hengirúmið. Fullkomið;)
Hvernig er annars nýja íbúðin?
Og hvernig er það kann enginn að baka bollur þarna?
Bjarni er að leggja af stað til Íslands á morgun. Hann kemur snemma á miðvikudagsmorgun. Svo kemur Charmaine 28.Feb. Og væntanlega mamma hennar og frænka líka!
asben
4.2.2008 kl. 19:08
Bahamas!!
Þú skellir þér bara til Bahamas,þarft bara hengirúm og sólgleraugu......
Það er alltaf ófært á milli Egilstaða og Reyðarfjarðar síðan við fluttum...við erum heppin....
það voru líka engar bollur í dag vegna ófærðar,því það er enginn bakari hér...
jæja en nóg í bili,hlakka til að sjá myndina,bæ Ella.
Ella
3.2.2008 kl. 21:34
Já næsta mynd kemur.
Bara ekki alveg strax! Hafðu það gott í snjónum, sem ég vona nú að fari að koma sér á suðurpólinn eða eitthvað. Kveðja Áslaug
asben
3.2.2008 kl. 11:43
Hæ og góðan Sunnudag,vonandi hafa allir það gott...
hér er allt fullt af snjó,en norðanhríðin er hætt í bili sem betur fer.....
ég er alltaf að teikna smá,skrýtnar myndir af fólki,ha,ha,
en það er svo gaman af því...........
bíð eftir næstu mynd Áslaug..það er svo gaman að pæla í þeim...
ég kann ekkert að botna vísur,svo ég tek ekki þátt á að botna þær......
Jæja en bráðum fer Þór að koma heim frá Kanarí"brúnn og sætur"
en nú fer ég út að labba,bless á meðan Ella.
Ella
1.2.2008 kl. 21:14
Maður er búinn að sakna þín ekkert smá! Ég var farin að halda að þig hefði fennt í kaf þarna fyrir austan:)
Velkomin aftur í samband!
Hvernig er íbúðin?
Skemmtu þér vel með jóladótið frá Styrmi og co. Hlakka til að sjá ykkur í maí.
Kveðja Áslaug
asben
1.2.2008 kl. 19:24
Ég er flutt og loksins tengd!!!
Sæl og blessuð,ég er nú ekki búin að vera neitt smá út úr heiminum án tölvunnar og símans,en þetta gekk loksins í dag.
Ég var líka að fá jólapakka frá Styrmi og Nicki,var heilan mánuð á leiðinni,þau gáfu mér teiknigræjur og leiðbeiningarbók,gaman,gaman,
jæja ég vona að allir hafi það gott,kv Ella.
Ella
31.1.2008 kl. 21:10
Hahahaha!!! Hafdís ég vona að þú náir þessu! Þegar ég var að svara þér áðan var helv.... tölvan svo hægvirk og ég svo óþolinmóð, þá getur svona farið:)
asben
31.1.2008 kl. 19:41
Það heitir nákvæmlega: Corel Painter 1X
asben
31.1.2008 kl. 18:50
Segðu mér hvað þetta corel draw forrit heitir nákvæmlega, er aðeins að spekúlera
hafdís
29.1.2008 kl. 12:44
Nú er ég búin að ákveða að næla mér í forrtið Corel draw Ella! Þó það sé svolítið dýrt að vísu.
Ég geri allt til að halda þér sem gesti á síðunni!!
Kveðja Áslaug
asben
25.1.2008 kl. 19:41
Haltu áfram Áslaug!
Sæl,mér finnst að þú ættir að halda áfram með forritið,það er svo gaman af þessu,velta vöngum og spjalla saman um myndirnar......
Ella
22.1.2008 kl. 14:07
Minnstu ekki á þetta Ella! Það er allavega ekki gúrkutíð núna svo mikið er víst!
En kíktu í póstinn þinn, ég sendi þér "fundargerð" frá fundinum í gærkvöld. Og myndir sem tengjast því máli.
Kveðja Áslaug
asben
21.1.2008 kl. 20:51
Moldviðri!!
Þetta er nú meira moldviðrið í bænum,ný lægð,,,,,ný borgarstjórn,,,,,ný lægð ,,,,ný borgarstjórn......maður veit ekki hvort fer hraðar yfir...hvað finnst ykkur um þetta moldrok????
kveðja Ella.
Ella
16.1.2008 kl. 19:02
Best að kvitta hér núna.
Hæ og Hó,það er rólegt þessa dagana hér.
Við vorum að panta flug til Eyja í byrjun Maí,ætlum á skólamót Laugameyja...
Svo er bara að fara að plana árið...hvenær maður kemur suður og fer út o.s.fr.
En núna eru flutningar á döfinni og nóg að gera,jæja en bless í bili,kv,Ella.
Ella
9.1.2008 kl. 8:32
Gott að heyra að þið flytjið á Reyðarfjörð og nær vinnustaðnum ykkar.Þið sparið tíma og peninga á því, eins og þú segir.
kveðja Áslaug
asben
7.1.2008 kl. 18:54
Takk fyrir uppskriftina!
Hæ,við vorum að skoða íbúð á Reyðarfirði og ætlum að skipta og flytja þangað,því það er svo langt og snjóþungt frá Egilstöðum í vinnuna,sparar tíma og peninga.Við flytjum 26 Janúar...segi meira seinna,annars allt gott að frétta héðan..
bestu kveðjur Ella.
Ella
6.1.2008 kl. 16:01
Hæ Ella! Takk fyrir Athugasemdina við myndina, það var gaman að henni.Mér datt nú í hug þegar ég las hana að þú veist nú manna best hvernig er að upplifa eldgos í byggð.Þá á ég við gosið í Heimaey.
Svo fór ég að leita að uppskrift að eplaköku og fann helling af þeim. Ég valdi þessa fyrir þig af því mér fannst hún girnileg,og myndi alveg vilja koma í kaffi þegar þú ert búin að baka hana. En ég verð bara að láta mig dreyma!
Frönsk eplakaka
5-6 græn epli-75 gr. smjör-50 gr. sykur-100 gr. malaðar möndlur(með hýðinu)-2 egg-safi úr einni sítrónu.
Skera eplin í þunna báta.Setja þau í smurt eldfast mót.Setja í ofninn á neðrtu rim við 225°gr C í u.þ.b. 12 min.Hræra smjörið mjúkt og bæta hinu öllu í eftir kúnstarinnar reglum og breiða yfir eplin og baka áfarm við sama hita í 10-12 min.Borða svo með þeyttum rjóma eða ís eða hvortveggja. Í uppskriftinni stendur að með þessari volgu eplaköku skuli drukkið hvítvín(kælt sauterne). Verði ykkur að góðu,ef þú nennir að baka þessa eplaköku. Mér sýnist nú að það taki ekki langan tíma.
asben
6.1.2008 kl. 11:49
Eplakaka!
Já sæll!
Jæja hvað segið þið gott í dag?
Ég ætlaði að baka góða eplaköku,en viti menn!allar uppskriftir eru úti í Þýskalandi,svo mig vantar uppskrift af eplaköku,ef einhver nennir að skutla henni hér inn....
Áslaug!Ég sit og pæli í fallegu myndunum þínum,það er svo gaman að reyna að finna út úr þeim...
myndin af parinu er uppáhalds myndin mín,hún er svo rómantísk.....mér finnst eins og Hafdísi Rósu að þetta sé par að syngja saman...kannski hún og Jói,en Jói er stærri persónan á myndinni.....
jæaj en njótið dagsins,siðasti jóladagur og dansið jólin út,
bless Ella.
Ella
5.1.2008 kl. 13:30
Hæ Ella gaman að "heyra í þér.Það er rólegt hér líka. Samt gæti maður farið á útsölur,en þá er ekki lengur rólegt!Þú ert svo dugleg að "kommenta" hér hjá mér,að þú ættir að fá verðlaun fyrir,og færð þau einhvern daginn! Og Hafdís Rósa líka:)fyrir sín innlegg hér:) Hvað það verður veit ég ekki ennþá en eitthvað verður það!
Myndin sem þú sendir mér er fín þú þarft að halda þessu áfram að teikna og mála. Ég þarf að kaupa ramma utanum myndina einhvern næstu daga.
Kannski fer ég á útsölu til þess! Kveðja Áslaug
asben
5.1.2008 kl. 11:11
Bið að heilsa öllum sem kíkja hér inn!
Það er rólegt hér á nýju ári.
Það er alltaf jafn gaman að skoða myndaalbúmið þitt Áslaug.
Jæja,ég er nú bara að láta heyra í mér og hér er góður vettvangur til þess,vona að öllum líði vel,kv Ella.
Ella
31.12.2007 kl. 21:22
Þetta skilst alveg með svona góðum skýringum!!
Og sömuleiðis ég óska þér og þínum gleðilegs árs og takk ryrir það gamla.
Það er að skella á leiðindaveður núna í þessum skrifuðum orðum.Kveðja Áslaug
asben
31.12.2007 kl. 17:17
Gott nytt ar Allihopp!
Ég veit ekki hvort þetta er rétt skrifað,en þetta leggst út sem"Gott nýtt ár öllsaman!"
Ég er nú alveg að fjúka burt....en nú er komið gott veður...
vona að veðrið verði ekki svona slæmt hjá ykkur í kvöld...
En bestu óskir til allra,heyrumst á nýju ári og vonandi sjáumst,kær kveðja Ella.
Ella
31.12.2007 kl. 0:01
Já það er hverju orði sannara hjá þér Ella.Veðrið
er að ganga niður í bili hér í kringum mig. En það var kolvitlaust veður fram eftir degi.Ég sá einmitt áðan á mbl.is að það væri allt að fjúka þarna fyrir austan, og varð þá hugsað til ykkar!Gott að heyra frá þér.
Ég vona að þið getið verið heima um áramótin, Heyrumst!
asben
30.12.2007 kl. 21:46
Árið er að fjúka burt!
Ég má nú til með að tilkynna mig í Gestabókina.....
Það er nú meira veðrið sem gengur yfir landið í dag....
við vorum rafmagnslaus í nokkra tíma hér,en allt með kyrrum kjörum samt,ég sofnaði í tvo tíma,þrátt fyrir hávaðan í rokinu......
jæja en ég vona að allt hafi verið í lagi hjá ykkur og óska öllum alls góðs,
kveðja Ella.
Ella
23.12.2007 kl. 23:53
Já, ég ruglaðist, auðvitað átti ég við álverið, ég bara tengi þetta eitthvað allt saman í hausnum. Ég hló að þessum með efnalaugina, þetta er svona kvikindislega fyndið. jæja, best að fara að sofa svo kertasníkir komist nú í bæinn.
Bæbæ
Hafdís
Hafdís Rósa
23.12.2007 kl. 21:54
Gaman að heyra frá þér Hafdís Rósa.
Jú það er mikill munur fyrir fólkið að fá svona góðan mat,en þetta Mötuneyti er í Álverinu en ekki á Kárahnjúkum.
Það eru 3 úrvals kokkar sem elda matinn,svo er frábært starfslið þarna og góð samvinna.
Ég lagði leið mína eftir vinnu í dag í sundlaugina á Eskifirði(fólkið það kallar laugina"Efnalaugina"eftir slysið sem var s.l.sumar,þó það sé nú kannski ekkert fyndið.
Jæja,en ég læt heyra í mér um jólin aftur,
Gleðilega Hátíð,
Ella.
Ella
22.12.2007 kl. 23:12
Sæl Ella,
Það var nú til umræðu í mötuneytinu á mínum vinnustað í hádeginu á fimmtudaginn hversu góður maturinn væri í mötuneytinu á Kárahnjúkum. Að menn væru orðnir leiðir á sóma samlókunum en að núna væru framreiddar dýrindis máltíðir á hverjum degi :)
Gleðileg jól!!! Er ekki jólalegt fyrir austan?
Hafdís Rósa
22.12.2007 kl. 18:16
Sæl og blessuð,já það er annsi mikið að gera,en allt er ánæjulegt og okkur fer fram á hverjum degi......
Ég vona að allir hafi það gott.....sakna ykkar um jólin,en við sjáumst vonandi á næsta ári.........
heyrumst um jólin,kv.Ella.
Ella
20.12.2007 kl. 23:27
Jæja! ertu komin á fullt í puðið.
Vonandi fáið þið gott jólafrí bæði. Mér finnst Egilsstaðabúar hugulsamir við þig. Halda sig bara inni í jólainnkauptíðinni og eftirláta þér pleisið svo þú getir æft þig að keyra!
Þetta er almennilegt fólk þarna á austurlandinu, finnst mér ekkert að stressa sig.
Ég er líka viss um að þú keyrir eins og einkabílstjóri!( Þeir eru bestu ökuþórarnir,hlýtur það ekki að vera.)
Gangi þér vel í akstrinum,svo þú getir ekið í bæinn í sumar og kíkt í heimsókn.
Kveðja asben
'Aslaug Benediktsdóttir
20.12.2007 kl. 17:48
Sæl,það er svo mikið að gera í vinnunni að ég hef varla tíma til að líta hér inn,en ég kemmst í jólaskap við að sjá jólasveinana þína Áslaug,þeir eru sætir.............
jæja ég var nú að æfa mig að keyra aftur eftir áralangt hlé,gekk vel,nema að göturnar tæmdust hér á Egilstöðum,ég ekki skilja????????
Ha,ha,jæja en nóg af bulli,kær kveðja Ella.
Ella
16.12.2007 kl. 23:29
Hvaða vitleysa Ella að jólasveinarnir séu allir svo mjóir!
Ekki er Stúfur litli svo mjór, og Askasleikir er bara flottur í vextinum.
Hann er alveg eins og Íþróttaálfurinn barasta. Ekki satt?
Áslaug
16.12.2007 kl. 15:44
Hó,hó,hó,ég sé að það kíkja allir hér inn,en enginn kvittar fyrir!
Og hvað með Bloggið?
Og ekki segjast ekki hafa tíma....þið farið nú örugglega í Jólaköttinn með þessu áframhaldi.....
Jæja en það er enn allt gott að frétta frá Afríkuförunum....
Áslaug Jólasveinarnir þínir eru flottir,en svolítið mjóir....kannski Grýla eigi ekki mikið í soðið handa þeim....
Bless í bili Ella.
Ella
13.12.2007 kl. 0:02
Gott að heyra að ferðin gekk vel hjá þeim.
Vona svo að eldamennskan fari að virka hjá ykkur og starfsfólkið í álverinu fari að fá eitthvað í svanginn,sem er fjölbreyttara en Sómasamlokur með virðingu fyrir þeim!
Ég man líka eftir því að það hafi verið reynt til hins ýtrasta að fá mig til að leggja mér skötu til munns.Það tókst EKKI. Á Þorláksmessu komandi borða ég mannamat.
Kveðja til ykkar:)
asben
aslaug
12.12.2007 kl. 16:53
Fréttir frá Hrefnu og fjölskyldu!
Sæl og blessuð,best að nota þessa síðu sem fréttamiðil.
Hrefna sendi Mail og sagði að ferðin hefði gengið vel til Gambíu,en þetta eru mikil viðbrygði,því það er svo mikil fátækt og fólkið þarf að berjast fyrir að hafa í sig og á.
En það eru allir vinalegir og brosandi....Mía á erfitt með að borða matinn þarna,enda er hún bara 9 ára og svolítið lík ömmu sinni í þeim efnum...sælla minninga frá Stokkseyri,þegar að pabbi var að reyna að neyða ofan í mig mat....
Það er allt í Skötulíki ennþá í vinnunni,en þetta kemur allt með kalda vatninu,aumingja starfsfólkið er komið með Sóma-samloku-ofnæmi"ólæknandi".....
En þetta boðar eitthvað gott"fall er faraheill".......
Jæja en ég óska öllum alls góðs,bless Ella.
Ella
5.12.2007 kl. 7:46
Skild'etta vera jólaskór, skild'etta vera jólasnjór, skild'etta vera jólahjól. Ég bíð spennt!!!!!
asben
4.12.2007 kl. 18:55
Dulafulli Jólapósturinn er lagður af stað!
Ég var að póstleggja dularfulla póstinn til ykkar,þ.e.s.til Hafdísar,Kiddýar og Áslaugar,hinir sem eftir eru fá kannski svona póst frá mér um næstu jól"ekki vera afbrýðisöm"
Jæja,en bless í bili,Ella.
Ella
2.12.2007 kl. 21:27
Jú ég er í fínasta jólaskapi! Við fórum á jólahlaðborð í gær. Dúndurgott.
Í dag er allt svo jólalegt líka. Aðventukrans trónir á stofuborði með ljós á einu kerti eins og ráð er fyrir gert,fínn rauður dúkur á eldhúsborðinu og þar logar líka á kertum serían er komin á svalirnar, og í ísskápnum er hvítvín í kælingu og verður drukkið í kvöld. Ísskápurinn lumar líka á eðalostum sem Kiddý færði mér þegar hún kom heim.og þeir smellpassa við hvítvínið. Ég bið ekki um meira! Var ekki gaman að fara í skóginn að ná í jólatréð ég hef aldrei gert það,en kannski á ég það eftir einhverntíma.Allavega er tilveran góð hjá mér. Og ég vona og veit að eins er hjá þér.
Þú heyrir að ég er í jólaskapi og svona líka sæl og góð!!!
Bestu kveðjur til ykkar fyrir austan. asben
asben
2.12.2007 kl. 17:44
Jólaskap.........
Jæja eru ekki allir í jólaskapi á fyrsta sunnudegi í aðventu....
Við fórum í gær í góða veðrinu og hjuggum okkur lítið jólatré og það skartar sínu fegursta úti á verönd....
vonandi hafa allir það gott....
Kveðja Ella.
Ella
30.11.2007 kl. 11:18
Það var víst prestur!
Ég las þetta á starfsmannasíðunni sem hann Sævar hefur hjá Alcoa,þetta var víst prestur sem gerði þessa vísu....
Bless Ella.
Ella
30.11.2007 kl. 0:18
Það þori ég að veðja að þessari hefur einhver austfirskur bóndi laumað að þér!
asben
29.11.2007 kl. 11:22
Verð að smella þessu í Dagbókina!
Hvað er líkt með hrúti og presti,heims á mörgum bólunum?
Annatíminn allra mesti,
er hjá þeim á jólunum.
Ella
28.11.2007 kl. 12:22
Hljómar vel! ÉG elska að fá svona jólapóst,eins og þú ert að ýja að.
asben
28.11.2007 kl. 12:08
Gagnrýni já.....
Sæl,já kannski verður þú að gagnrýna litlu systir bráðum af verkum hennar,en bíddu það til þú færð jólapóst.....
bæ,Ella.
Ella
27.11.2007 kl. 23:35
Takk fyrir Ella,þú ert nú sú eina sem lætur álit þitt í ljós. Og ekki er nú neitt vont fyrir egóið hvað þú ert jákvæð. En ég þoli neikvæða gagnrýni bara vel!
Galleríið,það er bara út um allt í bili!
Bið að heilsa Hrefnu,og þakka henni fyrir innlitið hjá mér. Kv asben
asben
27.11.2007 kl. 17:31
Hæ,ég skoða myndirnar þínar á hverjum degi og dáist að,Hrefna er líka búin að skoða og er stórhrifin,hún var að spurja hvort þú værir með Galleri og seldir myndir?
Jæja skildu Hafdís og Kiddy vera komnar heilar á húfi heim??
Kveðja Ella.
Ella
20.11.2007 kl. 17:28
Hó,hó,hó,
Sæl öll sömul sem kíkja hér inn.
Og sæl Áslaug mín,vonandi hafa allir það gott hjá þér.
Mér er hugsað til Hafdísar og Kiddýar sem eru að eyða og eyða.....Gumma og Garðari er orðið illt í Seðlaveskinu!!
Jæja en nóg af bulli í dag,blessíi Ella.
Ella
19.11.2007 kl. 19:56
Enn einn Brandari!
Einn sem Ljóska sagði mér!(kannski er þetta sönn saga):Fyrir ári síðan lét ég skipta um alla glugga í húsinu okkar.
Ég keypti þessa dýru tvöföldu með orkusparandi einangrunarhúðinni.
Svo í gær...ég meina það sko!,hringdi verktakinn,sem seldi mér rúðunar.Hann sagðist hafa lokið verkinu fyrir einu ári,og ég hefði ekki enn borgað honum eina krónu....ég er ekki nautheimsk,þótt ég sé ljóska...Ég sagði honum..að flinki og vel talandi sölumaðurinn hanns...sem talaði við mig..hefði fengið mig til að kaupa á þeim grundvelli að þessar rúður myndu borga sig upp sjálfar á einu ári!!
Hallóó!Núna er nefninlega liðið eitt ár!
Þá kom löng þögn í símanum..svo ég lagði bara á..
Hann hringdi ekki til baka...hann vill ekki viðurkenna,hversu vitlaus hann er!!
Kveðja Ella.
Ella
18.11.2007 kl. 20:06
Hæ,ég kann nú engan brandara í dag,en ætla að kvitta fyrir mig.Það kom eiginlega enginn snjór í gær,en í dag var yndislega fallegt veður og við fórum í langan göngutúr,kveðja til allra,Ella.
Ella
18.11.2007 kl. 13:35
Þessi er alveg eldgamall en góður: Helgi Sæm.(sem er líka svo gamall að hann er löngu dáinn.)En allavega var hann spurðu að því hvað hann myndi taka með sér matarkyns ef hann lenti á eyðieyju. "Þá myndi ég taka með mér fransbrauð borða af því báða endana,og borða svo fransbrauð endalaust þar til mér yrði bjargað."
asben
18.11.2007 kl. 12:21
í tilefni rjúpnaveiðitímabilsins
Það voru einu sinni tveir vinir sem fóru á Rjúpu. Öðrum þeirra varð það á að skjóta hinn. Sá sem skaut hringdi í neyðarlínuna og sagði frá því sem gerst hafði. Neyðarlínumaðurinn spyr þá skotmanninn hvort félagi hans sé dáinn. Þá segir skotmaðurinn: ,,Bíddu aðeins....BANG..hann er það núna".
Hafdís
13.11.2007 kl. 11:54
Takk fyrir Ella mín!
Já ég er búin að skoða síðuna hans Jóns Arons,hún er flott ég er sérstaklega hrifin af fuglamyndunum sem hann hefur tekið.Þær Hafdís og Kiddý fara ekki fyrr en 21 nóv. held ég.
Aslaug
asben
13.11.2007 kl. 11:26
Sæl,frábærar nýjar myndir,sérstaklega Hafmeyjan og Glermyndaandlitin,
ertu búin að skoða síðuna hanns Jóns Arons,flottar ljósmyndir þar.
Kv.Ella.
p.s.eru Hafdís og Kiddý komnar til baka frá Kanada?
Ella
12.11.2007 kl. 16:04
Þetta er náttúrlega mjööög flókið úrlausnarefni!
asben
12.11.2007 kl. 15:57
Hér kemur fyrsti Brandarinn!
Nýgift hjón voru að sýna vinum sínum íbúðina.
Hún var mjög þægileg og rúmgóð og höfðu hjónin sitt hvort svefnherbergið.
"En hvað gerið þið"spurði einhver"ef ykkur langar að sofa saman?"
"þá flautar hann"sagði unga konan"og ég fer til hanns"
"En leiðist þér ekki,ef hann flautar EKKI?"Var þá spurt aftur.
"þá fer ég í dyrnar"sagði hún og spyr"varstu að flauta ELSKAN?"
Bless Ella.
Ella
12.11.2007 kl. 0:26
Fínt Ella mín það mega allir segja brandara,hér í gestabokinni minni,það er bara gaman að því!:)Þakka þér fyrir innlitð,mér finnst voða gaman að sjá hvað margir kíkja inn.
asben
11.11.2007 kl. 23:33
Góða nótt!
Já,það getur verið fjör á svona síðum.Áslaug,ég skora á þig að setja nokkra Linka inn,fyrir gestina þína t.d.Teiknikeppni.....
eða Brandaralink,jæja en nóg í bili,bæjó Ella.
Ella
11.11.2007 kl. 21:29
Það er ekkert annað.......
Það er ekkert annað, þetta er bara að verða gestabók gestabókanna. Ég næ hvorki fyrsta né öðru sæti í þvi að skrifa oft.
Sæmundur
11.11.2007 kl. 14:03
Ástarþakkir Bjarni minn!Ég skoða þetta.
Gangi þér vel í dag
asben
asben
11.11.2007 kl. 12:30
myndir
búinn að setja inn nokkrar myndir (19 held ég). Þú getur svo hent þeim út sem þér líkar ekki.
bjarni
11.11.2007 kl. 2:10
og ég sá fjórði
skemmtilegar myndir og mjög gaman að lesa textann með myndunum. ég á einhverjar myndir af myndum frá þér, sendi þér þær fljótlega.
bjarni
10.11.2007 kl. 17:38
Sorry,ég meina þriðja,kv.Ella.
Sá ekki þann sem er annar í röðinni,bye,ella.
ella
10.11.2007 kl. 17:35
Og ég er önnur ha,ha!
Hæ,hæ,hæ,ég skelli bara inn smá brandara hér:Hver er munurinn á Hundamat og Karlmanni?Svar:Hundamatur inniheldur Heila...
Það var karlmaður sem sagði mér þennan!Bless Ella.
p.s.flottar myndir Áslaug.
Ella
6.11.2007 kl. 23:15
og ég næstur
sb
6.11.2007 kl. 22:48
JESSSS!!!
ég var fyrst að skrifa í gestabókina :)
Hafdís
